top of page
IMG_5412.jpeg

Jólaljósamaðurinn

IMG_5481.png

Um sögurnar

Á æskuárum sínum var Jólaljósamaðurinn með ofurhetjur á heilanum. Dag einn í aðdraganda jóla féll hann af þaki þar sem hann var að setja upp jólaljós en það vildi honum til happs að flækjast í ljósasnúrunum. Í kjölfarið ákvað hann að gerast ofurhetja sjálfur. Þótt hann sé nú kominn á fullorðinsár hefur hann lítið breyst. Hann er staðráðnari en áður í að öðlast frægð og viðurkenningu, en fólk á erfitt með að taka hann alvarlega. Ekkert gengur hjá honum, en einn daginn rekst hann á aðdáanda, hinn unga Ninjamann, sem vill læra að verða hetja. Auk þess kynnast þeir hinum bráðláta Agli Bogasyni,

nýlegri ofurhetju og fyrrum atvinnuíþróttamanni í bogfimi. Þótt Ísland sé friðsælt land leynast þar smáskúrkar á borð við Sterajötuninn, HEMA riddarann og Gangsta Jóla, sem hetjurnar okkar munu þurfa að kljást við. 
​
Er hægt að gera drauma sína að veruleika? Hvað færir manni hamingju? Hvers vegna leggjum við svona mikið á okkur til að ná markmiðum okkar? Hvað felst í því að betrumbæta sjálfann sig? Hvers vegna hefur Jólaljósamaðurinn á sér jólaljós
þó að það sé hásumar? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem hetjurnar okkar munu takast á við.

Hafðu samband

Instagram

Tölvupóstur

Sími

+354 6808060

bottom of page